Námskeið
Aftur til sjálfrar mín – framhaldsnámskeið
Fyrir hvern?
Námskeiðið er ætlað konum með áfallasögu og/eða tilfinningalega erfiðleika.
Á grunnnámskeiðinu er farið í þá grunnþekkingu sem nauðsynleg er til að fólk hafi forsendur til að öðlast samkennd með sjálfu sér, og skilning á eigin hegðun, hugsun og líðan.
Á framhaldsnámskeiðinu er byggt ofan á þá þekkingu, og ákveðið þema tekið fyrir í hverjum tíma, með því augnamiði að gefa fólki betri verkfæri til að takast á við þá þætti sem um ræðir. Þemun eru atriði sem fólk með áfallasögu á oft í erfiðleikum með. Þátttaka í námskeiðinu færir konum nýja innsýn á eigið sjálf og eigin viðbrögð við umhverfinu og miðar að því að auka sjálfstraust og samkennd gagnvart sjálfum sér.
Á framhaldsnámskeiðinu lærir fólk:
- Byggt ofan á fróðleik um tengingu líkamlegrar og
andlegrar heilsu, skoðað hvernig grunn líkamsstarfsemi hefur áhrif á virkni og
líðan - Ýmsan sértækan fróðleik um ákveðin þemu sem oft eru í
ólestri hjá fólki með áfallasögu - Leiðir til þess að kortleggja betur vandamál og finna
viðeigandi lausnir - Haldið áfram að tengjast inn á líkamann
- Að mæta sjálfri sér í mildi og gleði
Dagskrá:
1. tími Svefn, melting, öndun
2. tími Núvitund og samkennd
3. tími Reiði, hatur, fyrirgefning
4. tími Félagsfærni, traust, mörk
5. tími Ofbeldi í nánum samböndum
6. tími Fíkn
7. tími Gildi
8. tími Bataferillinn og bakslagsvarnir
Námskeiðið er haldið 1x í viku í 2,5 tíma í senn, í samtals 8 skipti eða 20 klst.
Leiðbeinandi: Lilja Sif Þorsteinsdóttir, sálfræðingur
Verðbil 1: 95.000
Verðbil 2: 120.000
Verðbil 3: 145.000
Staðfestingargjald, kr. 20.000, þarf að borga við skráningu. Hægt er að skipta greiðslum og svo niðurgreiða stéttarfélög námskeiðið.