Námskeið

Áfallamiðuð nálgun á vinnustað

Fyrir hvern?
Námskeiðið er ætlað fólki sem vill geta nýtt sér áfallamiðaða nálgun í leik og starfi

Öll verðum við fyrir áföllum í lífinu, en það er misjafnt hversu vel við höfum náð að vinna úr þeim. Í daglegum samskiptum getur miklu skipt að átta sig á því hversu algeng óunnin áföll eru, og hvernig hægt er að koma í veg fyrir að samskipti dagsins í dag ýfi upp sár að óþörfu.


Áfallamiðuð nálgun miðar að því að skapa umhverfi og aðstæður þar sem fólki finnst það öruggt og ekki er ýtt undir áfallaviðbrögð.

 

Á námskeiðinu verður fjallað um af hverju það er mikilvægt fyrir fyrirtæki og stofnanir að innleiða áfallamiðaða nálgun, hvað felst í slíkri nálgun, og hvernig vinnustaðir geta innleitt hana.

 

Umræðuþættir:

  • Hvað er áfallamiðuð nálgun og hvað felst í henni?
  • Hvers vegna áfallamiðuð nálgun?
  • Eðli áfalla og áhrif þeirra
  • Þroskun taugakerfis okkar
  • Mikilvægi tengsla og félagslegra samskipta
  • Hvað felst í áfallamiðaðri nálgun?

 

Markmið

·       Að þátttakendur hafi grunnþekkingu á áhrifum áfalla og samskipta á heilsu og velferð og átti sig á algengi óunninna áfalla.

·       Að þátttakendur geti skilið og tekið tillit til þess hversu yfirgripsmikil áhrif áföll geta haft á upplifun, líðan og hegðun fólks.

·       Að þátttakendur fái í hendurnar verkfæri til að skapa umhverfi og aðstæður þar sem allir eru öruggir og ekki er ýtt undir áfallaviðbrögð.

 

Námskeiðið hefur fengið afbragðs dóma þátttakenda, bæði fyrir efnistök, framsetningu og kennslu námsefnis.

 

Lengd: 3 klst

Verð: 15.000,-

 

Vertu með

Vertu hluti af samfélaginu