Námskeið
Morgunletileikfimi
Fyrir þau okkar sem eiga í innri baráttu við púkann á öxlinni þegar kemur að hreyfingu.
Hér eigum við notalega klukkustund saman þar sem byrjað er á léttum teygjum og hreyfingu í 15-20 mínútur áður en endað er á hugleiðslu og notalegri stund með tebolla áður en haldið er út í dagsins amstur.
Njóttu þess að byrja daginn með ásetningi, ró og notalegheitum.
Tímarnir eru öllum opnir án endurgjalds.
Tímasetning: Mánudagar og fimmtudagar kl. 09:00
Verð: Frjáls framlög
ATH – Nauðsynlegt er að skrá sig í opna tíma fyrirfram fyrir kl. 16 daginn áður með því að senda tölvupóst á heilshugar@heilshugar.is.