Kennarar og meðferðaraðilar
- Sálfræðingur með endurhæfingu eftir áföll, heilsubrest og fíknivanda að sérsviði
- Útskrifaðist úr Cand.Psych námi frá Háskóla Íslands árið 2011
- Lauk sérnámi í hugrænni atferlismeðferð árið 2017
- Hefur lokið grunnþjálfun í EMDR, klínískri dáleiðslu og heildrænni skaðaminnkandi sálmeðferð (e. integrative harm reduction psychotherapy).
- Útskrifaðist sem jógakennari árið 2021
- Hefur starfað í endurhæfingu frá upphafi, fyrstu árin á Reykjalundi og hjá Krafti – stuðningsfélags ungs fólks með krabbamein og aðstandenda þeirra, síðar í endurhæfingu vímuefnaraskana og að lokum hjá Hæfi endurhæfingarstöð
- Formaður Snarrótarinnar – samtaka um skaðaminnkun og mannréttindi 2018-2021
- Aðhyllist heildræna nálgun á manneskjuna, með samkennd að leiðarljósi
Lilja býður upp á:
- Einstaklingsmeðferð og -fræðslu til fullorðinna einstaklinga með áfallasögu, langvinnan heilsubrest og/eða sögu um fíknivanda.
- Ýmis konar námskeið og fræðslu til einstaklinga, hópa og fyrirtækja
Einstaklingstími (50 mín) hjá Lilju kostar 23.000,-
Svala Jóhannesdóttir
- Svala hefur starfað með fólki sem glímir við vímuefnavanda og fjölþættan vanda í 17 ár
- Hún hefur starfað fyrir Velferðarsvið Reykjavíkurborgar og Rauða krossinn, þar hefur hún stýrt skaðaminnkandi úrræðum á borð við Frú Ragnheiðar verkefnið á höfuðborgarsvæðinu, Konukot neyðarskýli fyrir húsnæðislausar konur og búsetuúrræðum fyrir karlmen með virkan vímuefnavanda
- Svala hefur lokið framhaldsmenntun á meistarastigi í fjölskyldumeðferð og faghandleiðlsu. Er með BA-próf í félagsfræði með áherslu á kynjafræði og jafnrétti
- Hún hefur vottun í samþættri skaðaminnkandi sálmeðferð (e. integrative harm reduction
psychotherapy)
Hefur lokið námskeiði í Couples and Addiction Recovery frá The Gottman Institute
Hefur lokið grunn- og framhaldsþjálfun í áhugahvetjandi samtali og námskeiði í Bjargráðakerfinu Björg (Skills system)
Svala er formaður Matthildar, samtaka um skaðaminnkun og er tengiliður Íslands hjá evrópsku skaðaminnkunarsamtökunum.
Hún situr í fagráði fyrir verkefnið Aðstoð eftir afplánun hjá Rauða krossinum.
Svala notast við samþætta skaðaminnkandi meðferð, áhugahvetjandi samtal og fjölskyldumeðferð í starfi.
Svala starfar eftir siðareglum Heilshugar og Fjölskyldufræðingafélags Íslands.
Svala býður upp á:
Faghandleiðslu fyrir starfsfólk
Einstaklings- og parameðferð fyrir fólk á öllum stigum vímuefnanotkunar og vímuefnavanda
Fjölskyldumeðferð fyrir aðstandendur fólks sem glímir við vímuefnavanda og/eða fjölþættan vanda.
Viðtöl á vettvangi sé þess óskað
Ráðgjöf og verktakavinnu fyrir stofnanir og þjónustuúrræði
Fræðslu um skaðaminnkandi hugmyndafræði, vímuefnavanda, öruggari vímuefnanotkun, góð og hjálpleg samskipti og önnur tengd málefni.
Steinunn Anna Sigurjónsdóttir
- Klínískur sálfræðingur, Cand.psych gráða frá Háskóla Íslands 2010
- Vann á Þjónustumiðstöð Breiðholts, Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Kvíðameðferðarstöðinni 2010-2016
- Ein af aðalstofnendum litlu Kvíðameðferðarstöðvarinnar (litluKMS) og yfirsálfræðingur 2016-2024
- Sérþjálfun í HAM og EMDR, fjöldi vinnustofa um áföll, sorg, tilfinningavanda, sjálfsmildi o.m.fl. (sjá Ferilskrá hér að neðan)
- Meðferð kvíðaraskana og tengdum vanda hjá börnum og fullorðnum
- Er vinveitt og upplýst í málefnum LGBTQ og taugafjölbreytileika
- Kortlagning og aðstoð við að vinna úr áföllum/erfiðleikum í æsku (developmental trauma)
- Kortlagning og aðstoð við að vinna með erfiðleika í nánum samböndum bæði innan fjölskyldu og við maka (tengslarof og tengslavanda)
- Kulnun, vefjagigt og síþreyta
- Krefandi tímamót, sorg og missir
- Afleiðingar eineltis
- Afleiðingar vanrækslu
- Flókin fjölskyldumál
- Áskoranir í skólakerfi, stuðningur við samskipti á milli heimilis og skóla fyrir foreldra eða stofnanir
- Fullkomnunarárátta, frestunarárátta, skólaforðun og afreksíþróttafólk/listamenn
- Meðferð og úrvinnsla áfalla, bæði einföld og flókin
- Er vinveitt og upplýst í málefnum á vímuefnarófinu
- Vinn með skaðaminnkun sé þess óskað
- Tek að mér stuðning við þá sem kjósa að nota hugbreytandi efni í sjálfsvinnu
- Tek að mér handleiðslu fagfólks við flóknum kortlagningum (og meðferð) á sálrænum vanda barna, unglinga og ungmenna
- Tek að mér handleiðslu fagfólks í HAM meðferð fyrir börn, unglinga og fullorðna í kvíðaröskunum (aðskilnaðarkvíða,ofsakvíða, félagskvíða, víðáttufælni, almennri kvíðaröskun, sértækri fælni og heilsukvíða) og áráttuþráhyggju
- Tek að mér fræðslu, fyrirlestra og námskeið eftir óskum
Viðtal hjá Steinunni kostar 23.000 kr.