Nokkur orð
Um heilshugar
Heilshugar er...
- Batamiðað rými með skaðaminnkandi áherslum.
- Griðastaður í dagsins amstri
- Vettvangur til að melta lífsreynslu sína og fá stuðning við að gera þær breytingar í sínu lífi sem manneskja vill
- Tengir fólk saman og gefur því tækifæri til að vera hluti af og taka þátt í og græða sár sín í samfélagi.
- Öruggur vettvangur til að komast í samband við eigin leikgleði og sköpunarkraft
- Staður til að auka sjálfsskilning fólks og tengingu þess við sjálft sig og umheiminn.
...leikmegin í lækningunni
Hvað er einstakt við okkar nálgun?
Leikgleðin að leiðarljósi
Lækningin hefur tvær hliðar.
Annars vegar þarf að græða sárin sín og koma sér aftur í virkni.
Það að “virka” er hins vegar ekki nóg. Við viljum líka þrífast.
Heilshugar miðar að því að skapa öruggan vettvang til að komast í samband við eigin leikgleði og sköpunarkraft.
Í sköpuninni býr gleðin.
Í gleðinni býr sáttin.
Í sáttinni býr hamingjan.