Trommuhringur
Fyrir Alla
Tónlist og taktur eru fyrirbæri sem tengjast beint inn í okkar dýpstu sálarfylgsni og hafa óumdeilanlega heilandi áhrif.
Nýjustu rannsóknir í áfallafræðum gefa okkur vísbendingar um hvers vegna þetta er.
Hinn reglubundni taktur trommunnar og samstilling hópsins í sköpun og spuna hefur endurnærandi áhrif á bæði líkama og sál.
Við trommum í myrkri við kertaljós, og tökum slökun í endann.
Hér þarftu ekki að opna munninn til að vera hluti af hóp. Bara lemja á trommu og njóta.
Trommuhringur er haldinn einu sinni í viku, á mánudögum kl. 20
Lengd: 1,5 klst
Verð: 3900,- fyrsti tími frír prufutími
ATH – Nauðsynlegt er að skrá sig í opna tíma fyrirfram fyrir kl. 16 daginn áður með því að senda tölvupóst á heilshugar@heilshugar.is.
3