- Klínískur sálfræðingur, Cand.psych gráða frá Háskóla Íslands 2010
- Vann á Þjónustumiðstöð Breiðholts, Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Kvíðameðferðarstöðinni 2010-2016
- Ein af aðalstofnendum litlu Kvíðameðferðarstöðvarinnar (litluKMS) og yfirsálfræðingur 2016-2024
- Sérþjálfun í HAM og EMDR, fjöldi vinnustofa um áföll, sorg, tilfinningavanda, sjálfsmildi o.m.fl. (sjá Ferilskrá hér að neðan)
- Meðferð kvíðaraskana og tengdum vanda hjá börnum og fullorðnum
- Er vinveitt og upplýst í málefnum LGBTQ og taugafjölbreytileika
- Kortlagning og aðstoð við að vinna úr áföllum/erfiðleikum í æsku (developmental trauma)
- Kortlagning og aðstoð við að vinna með erfiðleika í nánum samböndum bæði innan fjölskyldu og við maka (tengslarof og tengslavanda)
- Kulnun, vefjagigt og síþreyta
- Krefandi tímamót, sorg og missir
- Afleiðingar eineltis
- Afleiðingar vanrækslu
- Flókin fjölskyldumál
- Áskoranir í skólakerfi, stuðningur við samskipti á milli heimilis og skóla fyrir foreldra eða stofnanir
- Fullkomnunarárátta, frestunarárátta, skólaforðun og afreksíþróttafólk/listamenn
- Meðferð og úrvinnsla áfalla, bæði einföld og flókin
- Er vinveitt og upplýst í málefnum á vímuefnarófinu
- Vinn með skaðaminnkun sé þess óskað
- Tek að mér stuðning við þá sem kjósa að nota hugbreytandi efni í sjálfsvinnu
- Tek að mér handleiðslu fagfólks við flóknum kortlagningum (og meðferð) á sálrænum vanda barna, unglinga og ungmenna
- Tek að mér handleiðslu fagfólks í HAM meðferð fyrir börn, unglinga og fullorðna í kvíðaröskunum (aðskilnaðarkvíða,ofsakvíða, félagskvíða, víðáttufælni, almennri kvíðaröskun, sértækri fælni og heilsukvíða) og áráttuþráhyggju
- Tek að mér fræðslu, fyrirlestra og námskeið eftir óskum
Viðtal hjá Steinunni kostar 23.000 kr.