Svala Jóhannesdóttir

Meðferðaraðili

Svala Jóhannesdóttir

Svala er fjölskyldufræðingur og faghandleiðari með skaðaminnkun að sérsviði

  • Svala hefur starfað með fólki sem glímir við vímuefnavanda og fjölþættan vanda í 17 ár
  • Hún hefur starfað fyrir Velferðarsvið Reykjavíkurborgar og Rauða krossinn, þar hefur hún stýrt skaðaminnkandi úrræðum á borð við Frú Ragnheiðar verkefnið á höfuðborgarsvæðinu, Konukot neyðarskýli fyrir húsnæðislausar konur og búsetuúrræðum fyrir karlmen með virkan vímuefnavanda
  • Svala hefur lokið framhaldsmenntun á meistarastigi í fjölskyldumeðferð og faghandleiðlsu. Er með BA-próf í félagsfræði með áherslu á kynjafræði og jafnrétti
  • Hún hefur vottun í samþættri skaðaminnkandi sálmeðferð (e. integrative harm reductionpsychotherapy)
  • Hefur lokið námskeiði í Couples and Addiction Recovery frá The Gottman Institute
  • Hefur lokið grunn- og framhaldsþjálfun í áhugahvetjandi samtali og námskeiði í Bjargráðakerfinu Björg (Skills system)
  • Svala er formaður Matthildar, samtaka um skaðaminnkun og er tengiliður Íslands hjá evrópsku skaðaminnkunarsamtökunum.
  • Hún situr í fagráði fyrir verkefnið Aðstoð eftir afplánun hjá Rauða krossinum.
  • Svala notast við samþætta skaðaminnkandi meðferð, áhugahvetjandi samtal og fjölskyldumeðferð í starfi.
  • Svala starfar eftir siðareglum Heilshugar og Fjölskyldufræðingafélags Íslands. Svala býður upp á:
  • Faghandleiðslu fyrir starfsfólk
  • Einstaklings- og parameðferð fyrir fólk á öllum stigum vímuefnanotkunar og vímuefnavanda
  • Fjölskyldumeðferð fyrir aðstandendur fólks sem glímir við vímuefnavanda og/eða fjölþættan vanda.
  • Viðtöl á vettvangi sé þess óskað
  • Ráðgjöf og verktakavinnu fyrir stofnanir og þjónustuúrræði
  • Fræðslu um skaðaminnkandi hugmyndafræði, vímuefnavanda, öruggari vímuefnanotkun, góð og hjálpleg samskipti og önnur tengd málefni.