- Svala hefur starfað með fólki sem glímir við vímuefnavanda og fjölþættan vanda í 17 ár
- Hún hefur starfað fyrir Velferðarsvið Reykjavíkurborgar og Rauða krossinn, þar hefur hún stýrt skaðaminnkandi úrræðum á borð við Frú Ragnheiðar verkefnið á höfuðborgarsvæðinu, Konukot neyðarskýli fyrir húsnæðislausar konur og búsetuúrræðum fyrir karlmen með virkan vímuefnavanda
- Svala hefur lokið framhaldsmenntun á meistarastigi í fjölskyldumeðferð og faghandleiðlsu. Er með BA-próf í félagsfræði með áherslu á kynjafræði og jafnrétti
- Hún hefur vottun í samþættri skaðaminnkandi sálmeðferð (e. integrative harm reductionpsychotherapy)
- Hefur lokið námskeiði í Couples and Addiction Recovery frá The Gottman Institute
- Hefur lokið grunn- og framhaldsþjálfun í áhugahvetjandi samtali og námskeiði í Bjargráðakerfinu Björg (Skills system)
- Svala er formaður Matthildar, samtaka um skaðaminnkun og er tengiliður Íslands hjá evrópsku skaðaminnkunarsamtökunum.
- Hún situr í fagráði fyrir verkefnið Aðstoð eftir afplánun hjá Rauða krossinum.
- Svala notast við samþætta skaðaminnkandi meðferð, áhugahvetjandi samtal og fjölskyldumeðferð í starfi.
- Svala starfar eftir siðareglum Heilshugar og Fjölskyldufræðingafélags Íslands. Svala býður upp á:
- Faghandleiðslu fyrir starfsfólk
- Einstaklings- og parameðferð fyrir fólk á öllum stigum vímuefnanotkunar og vímuefnavanda
- Fjölskyldumeðferð fyrir aðstandendur fólks sem glímir við vímuefnavanda og/eða fjölþættan vanda.
- Viðtöl á vettvangi sé þess óskað
- Ráðgjöf og verktakavinnu fyrir stofnanir og þjónustuúrræði
- Fræðslu um skaðaminnkandi hugmyndafræði, vímuefnavanda, öruggari vímuefnanotkun, góð og hjálpleg samskipti og önnur tengd málefni.