Um okkur
Heilshugar er batamiðað rými með skaðaminnkandi áherslum
Okkar markmið er að tengja fólk saman og gefa því tækifæri til að vera hluti af og taka þátt í og græða sár sín í samfélagi.
Við viljum skapa öruggan vettvang til að komast í samband við eigin leikgleði og sköpunarkraft og auka sjálfsskilning fólks og tengingu þess við sjálft sig og umheiminn.
Námskeið okkar byggja á skaðaminnkandi hugmyndafræði og áfallamiðaðri nálgun.
Við bjóðum upp á þjónustu við bæði einstaklinga og hópa.
Kennarar og meðferðaraðilar

Lilja Sif Þorsteinsdóttir
Sálfræðingur og eigandi Heilshugar

Lilja býður upp á:
- Einstaklingsmeðferð og -fræðslu til fullorðinna einstaklinga með áfallasögu, langvinnan heilsubrest og/eða sögu um fíknivanda.
- Ýmis konar námskeið og fræðslu til einstaklinga, hópa og fyrirtækja

Steinunn Anna Sigurjónsdóttir
Sálfræðingur, Cand.psych
Mitt líf – sálfræðistofa

Steinunn býður upp á:
- Meðferð og úrvinnslu áfalla, bæði einföldum og flókinna
- Stuðning við þá sem kjósa að nota hugbreytandi efni í sjálfsvinnu
- Handleiðslu fagfólks við flóknum kortlagningum (og meðferð) á sálrænum vanda barna, unglinga og ungmenna
- Handleiðslu fagfólks í HAM meðferð fyrir börn, unglinga og fullorðna í kvíðaröskunum (aðskilnaðarkvíða,ofsakvíða, félagskvíða, víðáttufælni, almennri kvíðaröskun, sértækri fælni og heilsukvíða) og áráttuþráhyggju
- Fræðslu, fyrirlestra og námskeið eftir óskum

Svala Jóhannesardóttir
Fjölskyldufræðingur og faghandleiðari
Sérsvið skaðaminnkun

Svala býður upp á:
- Faghandleiðslu fyrir starfsfólk
- Einstaklings- og parameðferð fyrir fólk á öllum stigum vímuefnanotkunar og vímuefnavanda
- Fjölskyldumeðferð fyrir aðstandendur fólks sem glímir við vímuefnavanda og/eða fjölþættan vanda.
- Viðtöl á vettvangi sé þess óskað
- Ráðgjöf og verktakavinnu fyrir stofnanir og þjónustuúrræði
- Fræðslu um skaðaminnkandi hugmyndafræði, vímuefnavanda, öruggari vímuefnanotkun, góð og hjálpleg samskipti og önnur tengd málefni.
Siðareglur Heilshugar
Ásetningur
Við leitumst við að starfa og þjóna á hátt sem stuðlar að vitund, samkennd og visku.
Samfélagsþjónusta
Við erum meðvituð um og viðurkennum ábyrgð okkar og áhrif á samfélagið. Við berum virðingu fyrir öllu lífi, og reynum að hámarka gagnsemi þjónustu okkar fyrir samfélagið í heild.
Einstaklingsþjónusta
Við virðum og stöndum vörð um sjálfræði þeirra einstaklinga sem til okkar leita. Við komum fram við aðra af virðingu og heiðarleika.
Fagmennska
Við sýnum af okkur metnað, færni, ábyrgð og heiðarleika.
Heilindi
Við leitumst við að fletta ofan af eigin skýringarkerfum, gildum, þörfum og tamörkunum sem geta haft áhrif á vinnu okkar.
Umburðarlyndi
Við sýnum opinn hug, umburðarlyndi og virðingu gagnvart skýringarkerfum og gildismati annarra. Við forðumst að ýta eigin gildismati og skýringarkerfum að öðrum.
Hvað er skaðaminnkun?
- Viðurkennir að notkun lyfja, bæði löglegra og ólöglegra, er staðreynd, hvort sem okkur líkar betur eða verr og kýs að vinna að því að minnka skaðsemi hennar fremur en að hunsa hana eða fordæma.
- Skilur að lyfjanotkun er flókið og margbrotið fyrirbrigði sem fyrirfinnst á rófi frá alvarlegri misnotkun til algers bindindis, og viðurkennir að hægt er að taka lyf á misöruggan máta.
- Gengur út frá því að mat á árangri sé byggt á lífsgæðum einstaklinga og samfélaga fremur heldur en algjöru lyfjabindindi.
- Kallar eftir virðingarfullum samskiptum án þvingana í þjónustu við notendur og umhverfi þeirra með það að markmiði að hjálpa þeim að draga úr skaða vegna notkunar.
- Tryggir að raddir fólks með fyrrum eða núverandi sögu um lyfjamisnotkun fái að heyrast í gerð áætlana og stefnumótunar sem ætlað er að þjóna þeim.
- Gerir ráð fyrir eigin ábyrgð notenda á skaðaminnkun og leitast við að styðja þá í að miðla upplýsingum og stuðningi sín á milli til að bæta kjör sín og umhverfi.
- Viðurkennir að fátækt, stéttaskipting, kynþáttafordómar, félagsleg einangrun, fyrri áfallasaga, mismunun á grundvelli kyns og annars konar mismunur á félagslegri stöðu hefur áhrif á getu fólks og styrk til að takast á við skaða af völdum lyfjamisnotkunar.
- Gerir ekki lítið úr né hunsar þær raunverulegu og sorglegu hættur sem misnotkun lyfja, bæði löglegra og ólöglegra, getur haft í för með sér.